Stuðlagil og Vök

Tanni Travel

7. July, 2022

Ferðin

Ekið er sem leið liggur að fossinum Rjúkanda á Jökuldal, þar er stutt og aðgengileg ganga upp að fossinum.

Þá höldum við sem leið liggur að Stuðlagili, austan megin Jökulsár. Þar er ein stærsta og fallegasta stuðlabergsmyndun á landinu og stuðlabergið einstaklega myndrænt. Sérstaklega þegar vatnið í ánni er tært en í byrjun ágúst breytist áin úr grænbláleitri í gráleita, þegar yfirfall verður á Hálslóni við Kárahnjúka. Rúmlega hálftíma auðveld ganga er að gilinu þar sem við tökum okkur tíma í að njóta náttúrunnar og nestis. Heildartími við Stuðlagil er um 2-3 klst.

Við ökum beina leið til baka í Vök Baths. Vök býður upp á fyrstu fljótandi laugar landsins í Urriðavatni, stóra laug, gufubað, köld úðagöng, vandaða gestaaðstöðu, tebar og veitingastaðinn Vök Bistro með útsýni yfir vatnið og laugarnar, og matseðil sem byggir á sjálfbærni og hráefni úr heimabyggð.

Einkennisdrykkur Vök Baths er jurtadrykkur bruggaður beint úr vatni Urraðavatns og íslenskum jurtum en það hefur fengið þá viðurkenningu að vera eina vottaða heita vatnið til drykkjar hér á landi.

Staðir:  Rjúkandi – Stuðlagil – Vök
Tími: 7klst
Erfiðleikastig: Létt

Verð:
15.000.- kr per mann
7.500.- kr fyrir börn (6-15ára)
Frítt fyrir ungabörn (0-5ára)​

Brottfarastaður: 
Farið verður frá Hús Handanna kl. 9:00 – Miðvangur, 700 Egilsstaðir
Sjá kort

Innifalið:
Leiðsögn á ensku og íslensku
Aðgangur að Vök baths

Taka með:

  •   Góðir gönguskór
  •   Lítinn bakpoka
  •   Föt eftir veðri
  •   Nesti
  •   Vatnsflösku
  •   Sundföt

Annað:

  • Börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum

Gott að vita:
Stuðlagil er mjög fallegt en líka hættulegt ef maður gleymir sér.
​Fylgið leiðsögumanninum í einu og öllu sem sagt er.

Frekari upplýsingar og bókanir eru á heimsíðu Tanna Travel: Stuðlagil og Vök – TANNI TRAVEL