Strengir í Tónspil – Soffía Björg og Pétur Ben

28. September, 2024

Soffía Björg og Pétur Ben hefja tónleikaröðina STRENGI sem er ný af nálinni en það er BRJÁN og Menningarstofa/Tónlistarmiðstöð sem standa fyrir henni í Tónspil. Tónleikarnir eru laugardaginn 28. september kl. 21:00 en húsið opnar kl. 20:30.
Soffía Björg og Pétur Ben hafa unnið saman frá árinu 2015 en Pétur var gítarleikari á fyrstu plötu Soffíu, sem ber heitið ‘Soffía Björg’ og var einnig ft. artist á hennar annarri plötu, ‘The Company You Keep’. Þessa stundina eru þau að vinna í þriðju breiðskífu Soffíu þar sem Pétur er pródúser plötunna ásamt því að semja nokkur laganna með Soffíu.
Þau munu flytja saman efni af komandi plötu í bland við tónlist þeirra beggja.
Soffía Björg er tónlistarkona, laga- og textahöfundur, gítarleikari og söngkona frá Borgarfirði. Hún er með BA gráðu í klassískum tónsmíðum úr Listaháskóla Íslands og hefur m.a. samið tónlist fyrir leikhús og tekið þátt í allskonar verkefnum auk þess að gefa út og flytja eigin lög. Auk Péturs hefur Soffía hefur verið í samstarfi við fjölbreyttan hóp textahöfunda og tónlistarfólks og þar á meðal má nefna Fríðu Dís, Krumma Björgvins, Siggu Kling og Hallmar Sigurðsson.
Pétur Ben er laga- og textahöfundur, gítarleikari, pródúser og kvikmyndatónskáld.
Hann hefur gefið út 3 breiðskífur; Wine for My Weakness (2008) Numbers Game (2011) og Gods Lonely Man (2012). Þessa stundina er hann kominn langt á veg með sína fjórðu breiðskífu. Undanfarin ár hefur hann verið að semja fyrir hin ýmsu kvikmyndaverkefni og hefur m.a. fengið Edduverðlaun fyrir Málmhaus (2013) og Fangar (2017)
Pétur hefur á sínum ferli unnið með fjölbreyttum hópi listafólks og má þar nefna Shahzad Ismaily, Nick Cave, Mugison, Oyama, Valdimar, Sóley, Amiina, Lay Low og Emiliana Torrini.
Þetta er sannkallaður hvalreki fyrir tónlistarunnendur á Austurlandi og við búumst ekki við öðru en húsfylli.
Miðaverð er kr. 4000 og húsið opnar kl. 20:30.
Tónleikaröðin er styrkt af:
Fjarðabyggð, Menningarstofu/Tónlistarmiðstöð og SÚN.