Sound of Silence – Kammerkór Norðurlands flytur bandaríska kórtónlist

Tónlistarmiðstöð Austurlands

19. March, 2023

„Sound of Silence“

Kammerkór Norðurlands heldur þrenna tónleika undir heitinu „Sound of Silence“ dagana í mars sunnan heiða og á Austurlandi. Dagskráin var frumflutt á Norðurlandi á þrennum tónleikum í nóvember s.l. og hlaut afar góðar viðtökur. Nú er tekinn upp þráðurinn á ný. Tónleikastaðirnir eru:

Selfosskirkja 4 mars, Guðríðarkirkja, Reykjavík, 5. mars, Egilsstaðakirkja 18. mars og Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði 19. mars.

Efnisskrá kórsins að þessu sinni er bandarísk kórtónlist og kennir þar ýmissa grasa. Flutt verða nokkur af glæsilegustu nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna. Einnig eru á efnisskránni þjóðlög, trúarleg lög og þekkt popplög í nýjum og afar metnaðarfullum útsetningum. Meðal lagahöfunda má nefna Paul Simon, Eric Whitacre, Jake Runestad, Billy Joel, Ola Gjeilo, Réne Clausen og Morten Lauridsen.

Stjórnandi Kammerkórs Norðurlands er sem fyrr Guðmundur Óli Gunnarsson en kórfélagar eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í tónlist og koma víða að af Norðurlandi. Kórinn hefur frá stofnun haft að markmiði að flytja nýja íslenska kórtónlist (raunar með ýmsum öðrum verkefnum) og gefið út þrjá hljómdiska, síðast árið 2020, en þar er að finna ljóð Davíðs Stefánssonar við ný og eldri íslensk lög. Að þessu sinni er stefnan þó tekin til Bandaríkja Norður-Ameríku.

Verkefnið er styrkt af Tónlistarsjóði.


Egilsstaðakirkja – 18. mars
Tónlistarmiðstöð Austurlands – 19. mars 

Miðasala fer fram á: Tix.is – Sound of Silence – Kammerkór Norðurlands flytur bandaríska kórtónlist