SKULD – heimildamynd um strandveiðivertíð

Valhöll Eskifirði

5. November, 2023

Komandi helgi ætlum við í samstarfi við 66°Norður að heimsækja austurland og sýna heimildamyndina okkar „Skuld“.

Við verðum á sunnudag 5. nóvember kl. 20 í Valhöll Eskifirði

Aðgangur er ókeypis.

Skuld er heimildamynd um strandveiðivertíð okkar á trillunni Skuld, sem við gerum út frá Rifi á Snæfellsnesi.

Myndin hefur fengið mjög góðar viðtökur og hlaut m.a. hvatningarverðlaun dómnefndar á Skjaldborg heimildamyndahátíð fyrr á árinu.

„Hvatningarverðlaun Skjaldborgar 2023 hlýtur mynd sem dómnefndarmeðlimum þótti sérstaklega hlý, fyndin og falleg. Mynd sem opnar glugga inn í heim smábátaeigenda og handfæraveiða á persónulegan og heillandi máta. Höfundur beitir sterkri sjónrænni nálgun og fer einstaklega vel með hlutverk sitt allt í kring um myndavélina svo úr verður allsherjar óður til ástarinnar, framtaksseminnar – og strandveiða“

Mikið væri gaman að sjá ykkur sem flest,

Rut og Kristján Torfi

Skuld trailer: https://www.youtube.com/watch?v=gPC62ECoSLE

Þorskbæn – Kristján Torfi & Trillukallakór: https://www.youtube.com/watch?v=wqhjmh01pHA

Skuld á facebook: https://www.facebook.com/skulddocumentary