Sköpunarmiðstöðin 10 ára

10. July, 2021

Sköpunarmiðstöðin 10 ára
10. júlí kl. 14:00 í Sköpunarmiðstöðinni, Stöðvarfirði
Aðgangur ókeypis

Sköpunarmiðstöðin fagnar 10 ára starfsafmæli laugardaginn 10. Júlí. Af því tilefni er boðið til glæsilegrar menningarveislu. Allir eru velkomnir.

Dagskrá
Kl.14:00 – Húsið opnar, gestum er boðið á pop-up kaffihús Kaffi Kvarnar og tónlistarfluttning Margrétar Arnardóttur.

  1. 14:30 – Leiðsögn um Sköpunarmiðstöðina

Kl. 15:00 – Setning afmælishátíðar, Signý Ormarsdóttir, Ívar Ingimarsson og Una Sigurðardóttir flytja erindi. Boðið verður uppá léttar veitingar og tónlistarfluttning Jóhönnu Seljan.

Kl. 17:00 – Ahjúpun útilistaverks eftir Arngrím Sigurðsson.

Kl. 21:00 – Tónleikar Hatara, húsið opnar kl. 20:30 og folk er beðið um að mæta tímanlega.

Ókeypis aðgangur er að allri dagskránni og mun framkvæmd viðburðarins taka mið af gildandi stóttvarnarreglum.

Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Menningarstofu Fjarðabyggðar og Tónlistarmiðstöð Austurlands. Uppbyggingarsjóður Austurlands styrkir verkefnið.