Sjana syngur strákana

21. July, 2021

Tónleikar í Seyðisfjarðarkirkju þann  21. júlí kl. 20:30.

Söngkonan Kristjana Stefáns leggur land undir fót í sumar og heimsækir nokkra skemmtilega tónleikastaði ásamt gítarleikaranum Ómari Guðjónssyni og kontrabassaleikaranum Þorgrími Jónssyni.Þau halda tónleika í

Þau ætla að bjóða uppá fjölbreytta dagskrá þar sem þau flytja í létt jözzuðum búningi lög frá ma. Bubba Morthens, Björgvini Halldórs, KK, Hauki Morthens, Ragga Bjarna, Vilhjálmi Vilhjálms, Valgeiri Guðjóns, Gunnari Þórðar og fleirum.

Tónleikarnir hefjast kl 20.30 og er aðgangseyrir er 3000.kr (2000 fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja). Við bendum á spennandi tilboð sem finna má í Austurlands appinu – 20% afsláttur fyrir notendur appsins.