Sirkusnámskeið Hringleiks – Múlaþing

30. July, 2021 - 31. July, 2021

Sirkusnámskeið á Egilsstöðum/Fellabæ
30.-31. Júlí í íþróttahúsinu í Fellabæ
Verð: Ókeypis en skráning nauðsynlegt

Sirkushópurinn Hringleikur býður upp á tveggja daga sirkusnámskeið fyrir 8-16 ára í íþróttahúsinu í Fellabæ 30.-31. júlí.

Um er að ræða skemmtilegt og líkamlega krefjandi sirkusnámskeið þar sem þátttakendur kynnast undirstöðum sirkuslistanna.

Námskeiðið er klukkan 11:00-13:30 báða dagana.

Námskeiðið er í boði MMF og er þátttakendum að kostnaðarlausu, en mikilvægt er að skrá nemendur til þátttöku.
Ef skráður nemandi mætir ekki og ekki er tilkynnt um forföll með minnst sólarhringsfyrirvara má búast við að rukkað verði forfallagjald að upphæð 3.000 kr.

Nánari upplýsingar og skráning á tix.is.

Námskeiðið er hluti af sirkusferð Hringleiks um landið. Nýsirkussýningin Allra veðra von verður sýnd á Austurlandi 29. júlí – 5. ágúst. Miðasala og nánari upplýsingar á tix.is.