Samkennd og heimsmarkmiðin
17. February, 2026
Stefanía G. Kristinsdóttir doktorsnemi og stundakennari við Háskóla Íslands kemur í skóginn til okkar með vinnustofu um samkennd byggða á rannsóknum sínum.
Rannsóknir Stefaníu snúa að samkennd og vistkerfi notendaleiddrar samfélagslegrar nýsköpunar.
Á vinnustofunni verður farið yfir grunnuhugmyndir um samkennd með áherslu á greiningarmódel Elizabeth A. Segal um félagslega samkennd (social empathy). Farið verður yfir hvernig megi beita módelinu sem nálgun í stefnumótun, þjónustuhönnun og til að auka sjálfbærni í ýmsum samhengi.
Vinnustofan er liður í tilraunakennslu EDUS, evrópuverkefnis um sálfbærni í verk- og starfsnámi (VET).
Vinnustofan getur nýst öllum sem í lífi, námi og starfi fást við sjálfbærni og samfélagsþjónustu eða samfélagþróun.
Vinnustofan er öllum opin.