Rock Paper Sisters í Egilsbúð á Tónaflugi

Egilsbúð

7. October, 2023

Rokksveitin Rock Paper Sisters fagnar útgáfu á sinni fyrstu plötu, „One in a million” sem kom út núna í ágúst með tónleikum í Egilsbúð. Platan kom stafrænt en einnig út á vínyl og hana má nálgast hana við dyrnar í sérstakri viðhafnar útgáfu sem hefur verið framleidd í takmörkuðu upplagi fyrir tónleikana

Platan á Spottanum: https://shorturl.at/hoq19

Rock Paper Sisters hefur verið til í nokkur ár og er skipuð þjóðþekktum rokkhundum en sveitin hitaði meðal annars upp fyrir Billy Idol þegar hann kom fram í Laugardalshöll. Þetta verður rokk og rólsjóv sem bragð er af

Hljómsveitina skipa:

Eyþór Ingi, söngur og gítar
Davíð Sigurgeirsson, gítar og bakraddir
Þórður Sigurðarson, hljómborð og bakraddir
Þorsteinn Árnasson, bassi og bakraddir
Jón Björn Ríkarðsson, trommur

Platan er loks tilbúin og hefur verið að fá góða dóma og eru liðsmenn afar stoltir af frumburðinum og því ber að fagna með tónleikaveislu í Egilsbúð.

Eyþór Ingi sá um upptökustjórn í hljóðveri sínu að mestu en hljóðblöndun var í Höndum Magnusar Árna Öder og Arnars Guðjónssonar.

Masterinn kemur svo úr höndum Grammy verðlaunahafans Gavin Lurssen.

Miðaverð 4.500 kr og forsalan er á Tix.

Húsið opnar kl. 21:00 og það er einnig miðasala við innganginn í Egilsbúð.

Tónleikarnir eru hluti af Tónaflugi í Neskaupstað sem er samstarfsverkefni SÚN, Hildibrand og Menningarstofu Fjarðabyggðar.