Post-dreifing í Sköpunarmiðstöðinni

17. April, 2021

Post-dreifing kynnir:
Ör-tónlistarhátiðina Stuðvarfjörður í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði, laugardaginn 17. apríl kl. 20:00.

Húsið opnar kl. 7:30 og tónleikar hefjast stundíslega kl. 20:00. Mætum tímanlega

Dagskrá

k.óla & hljómsveit
Bjarni Daníel
Steinunn Sigþrúðardóttir
Stöðfirska bandið Blöndungur (Jónatan & Þórir)

Tónlistarfólk Post-dreifingar vakti mikla athygli þegar þau komu eins og ferskur blær inn í íslenska tónlistarsenu. Í ár eru þau k.óla, Salóme Katrín og Bjarni Daníel (v. Skoffín) öll tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Viðburður á vegum Post-dreifingar er tilnefndur sem tónlistarviðburður ársins. Því er hér mikið hæfileikafólk á ferð

Undafarna viku hefur hluti af þessu frábæra hópi dvalið í listamannadvöl í Sköpunarmiðstöðinni og unnið að tónlistarsköpun sinni.

Dvöl sinni munu þau ljúka með ör-tónlistar-hátíð í Sköpunarmiðstöðinni og er um einstakt tækifæri að ræða til að njóta þess allra ferskasta sem íslenskt tónlistarlíf hefur upp á að bjóða.

Einir efnilegustu tónlistarmenn Stöðvarfjarðar, þeir Jónatan Emil og Þórir munu einnig stíga á stokk með glænýtt efni undir nafninu Blöndungur.

Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Menningarstofu Fjarðabyggðar og Tónlistarmiðstöð Austurlands. Uppbyggingarsjóður Austurlands styrkir verkefnið.

Við minnum fólk á þær reglur sem eru gildi vegna covid19 – frekari upplýsingar er að finna hér https://bit.ly/2AUdvha.