Pétur Jóhann – Egilsstöðum

Valaskjálf

9. March, 2023

PÉTUR JÓHANN ÓHÆFUR

Sýningin PÉTUR JÓHANN ÓHÆFUR er 2 klst. uppistandssýning samin af Pétri sjálfum og er sjálfstætt framhald sýningarinnar PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR sem fór sigurför um landið fyrir nokkrum árum.

Það er ekki á hverjum degi sem þessi fáránlega fyndni og príðisgóði piltur er með uppistand opið öllum. Það er því um að gera að nýta þetta einstaka tækifæri til að sjá Pétur Jóhann live.

Pétur er, eins og alþjóð veit, gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari. Þar að auki hefur hann unnið marga stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.

Forsala miða hefst föstudaginn 3. mars og verður á Salt café & bistro. Þar er opið alla daga frá 11:00 til 22:00.

Miðaverð: 4.500 kr í forsölu // 5.500 við hurð.