Perlað af Krafti í Neskaupstað

Nesskóli

2. February, 2024

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla fyrir austan föstudaginn, 3. febrúar í Nesskóla í Neskaupstað.

Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem verður til sölu í fjáröflunar- og vitundarvakningu Krafts sem stendur nú yfir.

Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

Opið hús milli kl.17:00 og 20:00 og geta allir komið og lagt hönd á perlu í lengri eða skemmri tíma.
– Kaffi, drykkir og kruðerí á staðnum
– Tilvalið tækifæri til að eiga skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið
– Staðsetning: Nesskóli í Neskaupstað
– Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Krabbameinsfélag Austurlands og Krabbameinsfélag Austfjarða.

Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt skólann.

Hlökkum til að sjá þig !