Ormsteiti: Fellasúpa og Stuðstrætó

20. September, 2024

Fellasúpan 2024 verður á föstudaginn 20.september
Stuðstrætó fer frá Tehúsið Hostel kl 18.00
með lúðrasveit innanborðs, og mun keyra stanslaust fram og til baka meðan enn eru farþegar og súpa er til takið með eigin ílát.
Hver veit nema aðrir tónlistarmenn slæðist með þegar líður á kvöldiið.
Áætlun: Tehúsið – Súpustaðir – Vök -Súpustaðir – Tehúsið
Súpustaðir verða gerðir opinberir á Súpudaginn sjálfan
( enn geta súpuheimili tekið þátt og fylgir súpustyrkur frá Ormsteiti upp á 15.000 til hráefniskaupa sendið okkur skilaboð)
Trúbbapartý verður á Tehúsinu frá kl 20.30 frítt inn