Mugison í Vopnafjarðarkirkju

5. May, 2024

Ég ætla í geggjað Tónleika-Maraþon og spila í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum á innan við ári. Hef lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum, þær eru út um allt – í sveitunum, bæjum og öllum hverfum – allstaðar er kirkja – svo fallegar, dulafullar, kósý og spennandi.
Ég elska að spila í kirkjum það er eitthvað svo skemmtilega öfgafullt – einsog sum sönglög verði brothættari og fallegri og önnur ýkjast í hina áttina verða gróf og brussuleg. Ég er búinn að sérhanna svið, ljós og hljóðbúnað fyrir þetta tilefni. Verð einn með nokkra gítara, nikku, trommur og kirkjuorgel framtíðarinnar.
Hlakka mjög mikið til að hitta þig í Vopnafjarðarkirkju.
Stuðkveðja, Mugison.