Mugison í Norðfjarðarkirkju

26. June, 2024

Hæ hæ Kæru Norðfirðingar – Ég elska Neskaupstað! Það er eitthvað ! get ekki beðið eftir að prófa sprella í kirkjunni.
Ég er í geggjuðu Tónleika-Maraþoni, ætla að spila í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum á innan við ári. Hef lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum, þær eru út um allt – í sveitunum, bæjum og öllum hverfum – allstaðar er kirkja – svo fallegar, dulafullar, kósý og spennandi.
Ég elska að spila í kirkjum það er eitthvað svo skemmtilega öfgafullt – einsog sum sönglög verði brothættari og fallegri og önnur ýkjast í hina áttina verða gróf og brussuleg. Ég er búinn að sérhanna svið, ljós og hljóðbúnað fyrir þetta tilefni. Verð einn með nokkra gítara, nikku, trommur og kirkjuorgel framtíðarinnar.
Hlakka mjög mikið til að hitta þig í Norðfjarðarkirkjunni
Stuðkveðja, Mugison.
Tónleikarnir eru um 60 mínútur
Verð:
4.500 kr í forsölu
5.500 kr við hurð