Mottumars hlaupið

29. February, 2024

Nú störtum við Mottumars á sjálfan hlaupársdaginn!
Mæting við húsnæði félagsins að Sjávargötu 1, Reyðarfirði. Fjölskylduvænt hlaup sem hentar öllum. Þátttökugjald fyrir 12 ára og eldri 5000 (sokkar innifaldir) og fyrir yngri 1500 kr. (Buff innifalið). Posi á staðnum og gott að mæta tímanlega til að sækja sokka og buff.
Hlaupinn verður ca 5 km hringur án tímatöku en það má hlaupa hratt, hægt, ganga og stytta sér leið! Eina reglan er að mæta, taka þátt og hreyfa sig.