MINNA EN EKKERT – Lokasýning skapandi sumarstarfa í Fjarðabyggð

Templarinn Fáskrúðsfirði

28. July, 2023 - 30. July, 2023

Hæhæ við í Skapandi Sumarstörfum 2023 viljum bjóða ykkur á lokasýningu okkar sem heitir “Minna en Ekkert” !!!
Opnun sýningarinnar er föstudaginn 28. Júlí og mun standa til 30. Júlí. Sýningin verður á Búðavegi 8, 750 Fáskrúðsfirði í húsi sem heitir Templarinn. Sýningin verður sömu helgi og Franskir ​​dagar og hvetjum við alla til að njóta hinna viðburða líka!
Í ár erum við sex í hópnum og erum öll að gera mismunandi en flott og áhugaverð listaverk. Auk lokaverkefnana okkar munum við sína nokkur verk í vinnslu frá sumrinu, auk listaverka sem unnin voru í LungA. Hér fyrir neðan er smá um hvað þú getur búist við frá hverjum listamanni:
– Anna Karen Marinósdóttir sýnir videoverk byggt á ljóði sem verður ef til vill í næstu ljóðabókinni hennar.
– Helena Lind Ólafsdóttir sýnir dúkristur, skúlptúra og rafrænar teikningar.
– Kormákur Valdimarsson sýnir myndskreytt ljóð með tónlistarsetti.
– María Rós Steindórsdóttir sýnir rafrænar teikningar af gæludýrum í Fjarðabyggð og þið sem eigið gæludýrin sem hún teiknaði geta fengið ókeypis afrit af mynd af dýr/dýrunum ef þið komið á sýningu.
– Sara Rut Magnadóttir sýnir skúlptúra og ritunarverk um dýr í dýragörðum og hættur af útlegð.
– Stefán Ingi Ingvarsson sýnir olíumálverk sem sýna mismunandi stig meðvitunar.
Við hlökkum mikið til sýningarinnar og vonum til að sjá ykkur öll!!!
Opnunartímar:
Föstudaginn 28. Júlí kl. 16 – 19
Laugardaginn 29. Júlí kl. 12 – 16
Sunnudaginn 30. Júlí kl. 12 – 16
Templarinn
Búðavegur 8
750, Fáskrúðsfjörður