Mikael Máni- Guitar Poetry Concert Tónspil

15. March, 2025

Í samstarfi BRJÁN, SÚN og Menningarstofu Fjarðabyggðar :
Mikael Máni gítarleikari og tónskáld mun flytja blöndu af nýjum og gömlum lögum eftir sig ásamt nokkrum ábreiðum. Mikael gaf út sína fyrstu sólógítar plötu ‘Guitar Poetry’ í mars 2024 en platan kom út hjá þýska útgáfufyrirtækinu ACT sem er eitt af leiðandi jazz útgáfum í Evrópu. Tónlistin er samin í stíl sem heyrir ekki til venjubundna greina hugtaka jazz. Það má heyra áhrif frá þjóðlagatónlist, bergmáli frá blús, bandarískri alþýðutónlist og einstökum kvikmyndatónlistar blæ. Í líflegum og flæðandi spuna sameinar hann þetta á ljóðrænan hátt með skýrleika og hispursleysi söngvaskálds. Lögin segja sögur, opna rými og landslag, teikna myndir og eru spegilmynd gítarleikara sem er jafn
óhefðbundinn og hann er aðgengilegur, úthverfur introvert sem segir sögur í tónlistarlegri tjáningu af tilfinningu.
Fjölmiðlar erlendis hafa tekið eftir einstaka stíl Mikaels og einlægri
spilamennsku hans sem þeir keppast við að dásama. ‘Guitar Poetry’ fékk meðal annars 4 og 1/2 stjörnu dóm í Downbeat sem er virtasta jazz tímarit síðustu áratuga. ‘Innermost’, plata Mikaels hlaut einnig Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir jazz plötu ársins síðasta ár.
Hljóðdæmi/Vefsíða/Samfélagsmiðlar:
Mikael Máni: Tvær Stjörnur (Official Music Video)
Mikael Máni: What Once Was (Live Studio Session) / Album: Guitar Poetry
Mikael Máni: Katie, Not Klara (Live Studio Session) / Album: Guitar Poetry
Tónleikarnarnir fara fram í Tónspili BRJÁN að Hafnarbraut 22 Neskaupstað Laugardaginn 8. mars klukkan 20:30, Húsið opnar klukkan 20:00 og kosta krónur 3.000.