Leikritið Þrek og tár
11. March, 2026 - 24. March, 2026
Listaakademía Verkmenntaskóla Austurlands og Leikfélag Norðfjarðar setja upp leikritið Þrek & tár í leikstjórn Árna Grétars Jóhannssonar.
Þrek & tár er eftir Ólaf Hauk Símonarson og byggir á þekktum dægurlögum sem nutu mikilla vinsælda á þeim tíma sem verkið gerist, um og upp úr árinu 1961. Í leikritinu er fylgst með músíkalskri kaupmannsfjölskyldu í Vesturbæ Reykjavíkur sem tekst á við margvíslegar áskoranir daglegs lífs á sama tíma og draugar fortíðarinnar sækja að.
Verkið á erindi við áhorfendur á öllum aldri, enda fjallar það á áhrifaríkan hátt um mannleg samskipti og tilfinningar – ást og gleði, afbrýðisemi og vonbrigði, drauma, sigra og ósigra. Tónlistin gegnir lykilhlutverki í frásögninni og skapar lifandi og hlýja stemningu sem endurspeglar tíðarandann.
Öll eru hjartanlega velkomin að eiga með okkur góða stund í Egilsbúð, Neskaupstað.
Öll eru hjartanlega velkomin að eiga með okkur góða stund í Egilsbúð, Neskaupstað.
Miðapantanir á [email protected] eða í síma 477-1620 milli kl. 8-14 á virkum dögum.
Miðaverð 4900 kr. (3000 kr. fyrir 20 ára og yngri)
Sýningar:
11. mars kl. 20:00 – frumsýning
13. mars kl. 20:00
19. mars kl. 20:00
20. mars kl. 20:00
21. mars kl. 20:00
24. mars – kl. 14:00 sýning fyrir VA
11. mars kl. 20:00 – frumsýning
13. mars kl. 20:00
19. mars kl. 20:00
20. mars kl. 20:00
21. mars kl. 20:00
24. mars – kl. 14:00 sýning fyrir VA