Kvennaferð um Gerpissvæðið

Tanni Travel

12. July, 2022 - 14. July, 2022

Ferðin

Að hverfa frá amstri hversdagsins, stinga sér út í dásamlega náttúruna, gleyma stund og stað, finna lyktina af mosanum og næra sína innri konu er það sem við viljum upplifa í þessari ferð.

Við leggjum áherslu á að njóta fremur en að þjóta enda náttúrufegurð svæðisins engri lík, áherslan á nærandi útivist, lífsgleði og samveru.

Dagur 1
Mæting við Safnahúsið í Neskaupstað kl. 10:00, farið með rútu í Grænanes, þar sem gangan byrjar. Við göngum fyrir Hellisfjarðarmúla og inn Hellisfjörð. Nærandi stund í fjörunni í Hellisfirði, náttúru ígrundun og kakóbolli, hægt að skella sér í sjóinn ef veður leyfir. Gengið fyrir Viðfjarðarnes og inn Viðfjörð. Náttúrustund og slökun við varðeld í fjörunni. Gist í Viðfjarðarbænum.

Þægileg gönguleið en vaða þarf Hellisfjarðarós.

Hækkun: 500 m.
Fjöldi km: 17
Erfiðleikastig ferðar: 3/5

Dagur 2:
Gengið frá Viðfirði í Barðsnes. Áhersla lögð á nærandi útivist og samveru, að fagna lífinu og vera til. Núvitundarstund, þakklætishugleiðsla og notalegheit.

Gist í bænum Barðsnesi.

Hækkun: Óveruleg
Fjöldi km: 8
Erfiðleikastig ferðar: 1/5

Dagur 3:
Gengið frá Barðsnesi út á Barðsneshorn, sem er þverhnípt og ævintýri líkast að upplifa. Á leiðinni út á Horn, er komið við í Rauðubjörgum, fallegum líparítbjörgum við hvíta strönd.
Þegar gengið er til baka í Barðsnes, þar sem bátur mun sækja hópinn, er komið við í Mónesi, gengið út fjörur að einstökum steingerfingum.
Í dag er hægt að vera með dagpoka með þar sem gengið er fram og til baka í Barðnes.
Bátur sækir hópinn í lok dags og ferjar í Neskaupstað þar sem bílarnir voru skildir eftir.

Hækkun: Óveruleg
Fjöldi km:  10
Erfiðleikastig ferðar: 1/5

​Brottfarastaður:
Safnahúsið í Neskaupsstað – Sjá kort

Farastjórar
Hildur Bergsdóttir Fjallaleiðsögumaður og náttúruþerapisti
Linda E. Pehrsson Fjallaleiðsögumaður og náttúrumarkþjálfi

Þær hafa frá blautu barnsbeini unað sér best úti í náttúrunni og segja má að sameiginleg ástríða þeirra fyrir útiveru, mannrækt og lífsgleði sé grunnurinn að þessari ferð.

Frekari upplýsingar og bókanir eru á heimsíðu Tanna Travel: Í faðmi náttúrunnar – TANNI TRAVEL