KK í Havarí

16. June, 2017

KK heimsækir HAVARÍ föstudaginn 16. júní. KK þarf ekki að kynna fyrir nokkrum manni eða konu. Hann er ástsælasti blús og folk listamaður þjóðarinnar og órjúfanlegur hluti af þjóðarsálinni bæði í gegnum tónlist sína og dagskrárgerð. Við dýrkum öll KK og gleðjumst ógurlega yfir komu hans austur. KK er einstakur sögumaður og áhorfendur eiga magnaða kvöldstund í vændum.

Tónleikarnir byrja uppúr kl 21.00. Eldhúsið lokar klukkan 20.30

Tryggið ykkur miða í forsölu á tix.is

Tónleikarnir eru hluti af viðburðadagskránni Sumar í Havarí og við þökkumRás 2, Bríó og Bílaleiga Akureyrar / Europcar fyrir veittan stuðning!