Kiosk 108

7. June, 2024 - 8. June, 2024

Alþjóðleg neðanjarðarlist í stýrishúsinu á Seyðisfirði

KIOSK 108 – Captain’s Bridge / Stýrishús – NO PANIC ehf. er sjálfstæður vettvangur lista á Seyðisfirði. KIOSK 108 er staðsett í umbreyttu stýrishúsi trillu frá árinu 1969 og er miklu meira en bara viðburðastaður – þar finna gestir einstakan suðupott sjónlista, tónlistar og gjörninga.

Nú blæs KIOSK 108 til þriggja daga hátíðar í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík þar sem skipstjórinn Monika Fryčová býður upp á óvænta og töfrandi viðburði. Á dagskránni verða ómissandi atriði þar sem saman fléttast framsækin listsköpun, psychedelia, rokk og ról, þjóðlagatónlist, djass, pönk og metal svo úr verður margbreytilegt og ástríðufullt neðanjarðarpartý.

Frekari upplýsingar má fá á kiosk108.net og á Instagramsíðunni kiosk108iceland.