Jólagleðin á Vínlandi
13. December, 2025
Við viljum bjóða alla velkomna í okkar árlegu Jólagleði á Vínlandi þann 13. Desember næstkomandi milli klukkan 15-17.
Boðið verður upp á rjúkandi heitt súkkulaði með rjóma og jólaglögg
Jólasveinarnir eru ótrúlegir svo kannski kíkir einhver þeirra við um 16 leytið.
Við viljum skapa notalega stund með ungum sem öldnum og mun þetta því höfða til allra aldurshópa, hvort sem það verða jólasveinarnir
eða jólaglöggið
sem mun heilla.
Við hlökkum til að njóta dagsins með ykkur enn og aftur og mun þetta allt saman vera í boði hreindýragarðsins og Nettó. Þetta verður frítt fyrir alla, en eins og áður tökum við þakklát við frjálsum framlögum í hreindýragarðinn en í ár verðum við með bauk á staðnum sem rennur til styrktar fjölskyldna á Egilsstöðum sem eiga erfitt um jólin
Láttu þig ekki vanta og gleymdu jólastressinu með okkur í jólalandinu 
Þetta er birt með fyrirvara um breytingar á tímasetningu vegna veðurs 
Við værum einnig þakklát ef þið gætuð meldað ykkur “going” ef þið búist við því að mæta til að hægt sé að áætla betur magn kræsinganna
Við værum einnig þakklát ef þið gætuð meldað ykkur “going” ef þið búist við því að mæta til að hægt sé að áætla betur magn kræsinganna