Hvít sól í Skaftfelli

3. November, 2018 - 3. March, 2019

Listahópurinn IYFAC (Inspirational Young Female Artist Club) hefur síðustu mánuði rannsakað tímann sem hugtak og upplifun og samband manneskjunnar við sólina.

 Við á norðurhveli jarðar búum við þær öfgar að sólin er ekki  áreiðanleg klukka, hún færir okkur þó mjúklega inn í árstíðirnar með öfgakenndri birtu og myrkri. Ef við myndum smíða okkar eigin sólarklukku, hvernig liti hún út og hvað myndi hún mæla?

Tilvist okkar er samofin tímanum og að einhverju leyti er tímaskynjun innbyggð í vitund mannsins. Frá unga aldri er tímatal þjálfað og snemma gerð krafa um að læra á klukku en hversdagslegur veruleiki okkar er sambland af huglægri og hlutlægri tímaskynjun. Sólin er lykilþáttur í þessu samhengi. Staða sólar á himni segir okkur hvað tímanum líður og mjög algeng er að til séu vörður í hverju bæjarplássi sem nýtist okkur sem náttúruleg sólarklukka.

Sýningin Hvít sól  opnar um þetta leyti er sólin of lágt á lofti til að skína á bæjarstæðið, sem gerir það illgerlegt að lesa í landið til að vita hvað klukkan slær. Öllu rýminu er umbreytt í stóra innsetningu þar sem sólarfánar í yfirstærð spila lykilhlutverk. Fánarnir hanga, hlið við hlið, úr loftinu og mynda einhvers konar sólargangveg fyrir áhorfendur. Samhliða má heyra hljóðmynd sem túlkar sólarhringinn, eftir tónskáldið Daníel Helgason. Með því að færast um rýmið býðst áhorfandanum að upplifa tímann með öðru móti en dagsdaglega. Hin raunverulega sól, lífgjafi jarðar, er ekki lengur lykilþáttur heldur tilbúnar sólir sem bjóða upp á líkamlegri skynjun tímans, á stað sem að þessi árstími býður ekki upp á. Hvít sól stendur til 3. mars 2019.