Hvanndals yfirtaka Tehúsið

6. September, 2024 - 7. September, 2024

Hljómsveitin Hvanndalsbræður ætlar að leggja undir sig Egilsstaði helgina 6. – 7. september n.k og spila tónleika á hinu margrómaða Tehúsi föstudags- og laugardagskvöld. Forsala á tónleikadagana, takmarkað sætaframboð.
Allir ættu að finna tíma við hæfi, ef þú kemst ekki á föstudagskvöld þá kemur þú bara á laugardagskvöld eða öfugt. Ef þú ert alveg í brjáluðu stuði þá kemur þú bara bæði kvöldin. Annars mun hljómsveitin leika öll sín þekktustu lög og segja nokkrar vel valdar sögur inn á milli.
Sérstakt tilboð verður á ástarpungum á meðan birgðir endast.