Hryllingsganga í Tjarnargarði

Tjarnargarðurinn Egilsstöðum

2. November, 2023

Skemmtileg hryllingsganga fyrir krakkana! Gangan verður í Tjarnargarðinum klukkan 20:00 núna á fimmtudaginn þann 26. Nóvember. Gangan hefst með lagi sem verður sungið í tunglsljósinu og svo koma upp allskyns ævintýri sem eiga sér stað á leiðinni.

Við hvetjum krakkana og fylgjendur þeirra til þess að klæðast búningum en samt klæða sig eftir veðri. Þessi skemmtilegi viðburður er settur upp af Leikfélagi Menntaskólans á Egilsstöðum og þau ætla að taka hlýlega á móti öllum saman.

Hafið í huga að börn undir 12 ára aldri verða að vera í fylgd með fullorðnum einstaklingi. Við hvetjum einnig krakkana til með að koma með bakpoka eða eitthvað ílát til þess að safna nammi í.

Nánari upplýsingar er að finna á facebooksíðu viðburðarins: Hryllingsganga í Tjarnargarði! | Facebook