Hlýtt Heimili – fræðsla um varmadælur og styrki

8. January, 2026

Eyglóarverkefni Austurbrúar og Búnaðarsamband Austurlands bjóða íbúa Austurlands velkomna á fundi víða um fjórðunginn þar sem fjallað verður um varmadælur og aðra valkosti í húshitun, auk þeirra styrkmöguleika sem standa til boða fyrir heimili sem vilja spara orku og lækka rekstrarkostnað.
Sérfræðingur frá Umhverfis- og orkustofnun mun halda fræðsluerindi og verkefnastjóri Eyglóar verður einnig með stutta kynningu á varmadælum. Að loknum kynningum verður tími fyrir umræður og spurningar frá fundargestum.
Súpa verður á fundinum á Borgarfirði í boði HEF veitna og viljum við þakka fyrir velviljann.
Fundur fer fram í Fjarðarborg og hefst klukkan 12
Secret Link