hist og á Eskifirði

1. May, 2021

Tríóið hist og var stofnað í lok árs 2017 til þess að rugla saman reitum raf-og djasstónlistar. Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson, sem leikur á trompet, trommuheila og hljómboð, Róbert Sturla Reynisson á gítar, bassa og hljómborð og Magnús Trygvason Eliassen á trommur, slagverk og ekki-slagverk. Þeir beina stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum, með innhverfri, úthverfri og slagþungri blöndu af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við.

hist og gaf út sína aðra plötu, hits of, í desember 2020 sem var m.a. annar valin spunaplata ársins af Árna Matt í Morgunblaðinu og tilnefnd sem djassplata ársins til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Platan inniheldur margslungna slagara, hitablásna hittara og lakkaðar neglur í ætt við fyrri plötu tríósins, Days of Tundra, sem hlaut góðar viðtökur og var meðal annars tilnefnd til þriggja verðlauna á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2019, Kraumsverðlaunanna og sem “Spuni Ársins” á Morgunblaðinu. Um hits of skrifaði Arnar Eggert Thoroddsen hjá Morgunblaðinu ma. “Hörkustöff … stimpill þessa ofurtríós kirfilega á öllum smíðum.”

Meðlimir hist og hafa starfað saman um árabil í ýmsum hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang. Sitt í hvoru lagi hafa þeir auk þess starfað með hljómsveitum á borð við Sigur Rós, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og Mógil.

Á tónleikunum leikur sveitin efni af plötum sínum í bland við glænýtt efni í vinnslu.

Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.

Miðaverð: 2500 kr. og eru miðar seldir við innganginn. Tekið er á móti kortum og reiðufé.

Reglum um smitvarnir verður fylgt til hins ítrasta. Númeruð sæti.