Héraðsdætur ásamt Ba Na Na Boys

20. March, 2026

Héraðsdætur ásamt strákunum í hljómsveitinni Ba Na Na Boys blása til tónleika í Valaskjálf Föstudaginn 20.Mars.
Lagt er upp með að kvöldið verði hin besta skemmtun og á efnisskránni er tónlist úr öllum áttum, bæði íslensk og erlend.
Þær byrja rólega á íslenskum dægurlögum sem lifað hafa með okkur í áraraðir, rokk- popp og smá gospel og endað verður á sixties smellum sem mun fá alla til að vilja dilla sér, vonandi. Búast má við óvæntum uppákomum, sem jafnvel dæturnar vita ekki um.
Kynnir kvöldsins er hin frábæra Bergljót Halla sem stýrir dagskránni og passar að við hlæjum svolítið.
Ba Na Na boys munu hjálpa okkur að gera kvöldið ógleymanlegt, en þar eru hljóðfæraleikarar ekki af verri endanum.
Gítar- Frikki
Hljómborð og bassi – Haffi
Trommur og slagverk – Pálmi
Vonumst til að þið sjáið ykkur fært að mæta og taka þátt í gleðinni
Secret Link