Heims um Bóel – Jólatónleikar í Norðfjarðarkirkju

Norðfjarðarkirkja

22. December, 2023

Heims um Bóel, notaleg kvöldstund þar sem María Bóel
flytur jólalög ásamt góðum gestum.
Tónleikarnir verða 22. desember klukkan 20:00 í Norðfjarðarkirkju.
Miðaverð 2.500 krónur.
Gestasöngvarar verða Guðmundur R, Smári Leví, Rannveig Júlía og börn úr 2. bekk Nesskóla.
Um undirleik sjá Jón Hilmar og Daníel Arason.
María Bóel var nýverið að ljúka framhaldsprófi í rytmískum söng við Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hefur stundað nám síðastliðin þrjú og hálft ár. Af því tilefni var ákveðið að halda tónleika og fagna þessum áfanga í hennar kæra heimabæ með góðum gestum.