„Heiðin“ – Jessica Auer

13. April, 2024 - 8. June, 2024

Skaftfell býður ykkur velkomin á opnun einkasýningu Jessicu Auer „Heiðin“ 13. apríl klukkan 16.00.
Sýningin samanstendur af nýlegum ljósmyndum og vídeóverkum eftir kanadíska ljósmyndarann Jessicu Auer sem búsett er á Seyðisfirði.
„Heiðin“ er yfirstandandi verkefni sem kannar sögu og þróun vegs 93, hæsta fjallvegar á Íslandi og einu landleiðina til og frá Seyðisfirði. Á veturna er vegurinn lokaður dögum saman og einangrar íbúa frá vistum og restinni af samfélaginu. Þessi einstaki lífsmáti, einangraður og ótryggur, er í róttækum breytingum þar sem 13 kílómetra jarðgöng munu brátt leysa Fjarðarheiði af hólmi.
„Heiðin“ skrásetur þessa mikilvægu breytingu í gegnum mismunandi miðla; kvikmyndun, ljósmyndun og frásagnir frá undanförnum árum.
„Heiðin“ verður opin frá 15. apríl – 8. júní.