Handverk, hönnun og handavinna – gæðamat, vöruþróun og tækifæri!

1. July, 2021

Opinn fundur um handverk og hönnun
1. Júlí kl. 17:00 í Végarði, Fljótsdalshrepp
Aðgangur ókeypis

Sunneva Hafsteinsdóttir frá Handverki og hönnun er gestur fundarins.

Handverk, hönnun, handavinna.
Hver er munurinn?
Hvað er góður minjagripur?
Gæðamat, vöruþróun, markaður og tækifæri!

Fyrirlestur og opnar umræður

Sunneva Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri HANDVERKS OG HÖNNUNAR, verður svo til viðtals og ráðgjafar 2. júlí n.k. frá kl. 9.00 í Végarði
Handverksfólk getur komið og rætt við Sunnevu um gæðamál, vöruþróun og fleira. Panta þarf tíma fyrir 28. júní um netfangið [email protected], hvert viðtal er um 30 mín.
Ráðgjöfin er ókeypis og fullum trúnaði er heitið.

Handverksfólk innan sem utan Fljótsdals er velkomið á fyrirlesturinn. Fljótsdælingar hafa forgang varðandi ráðgjöf hjá Sunnevu á föstudeginum en annars öllum áhugasömum velkomið að bóka tíma.