Hammondhátíð 2022
Djúpivogur
21. April, 2022 - 24. April, 2022
Hammondhátíð Djúpavogs hefur það að meginhlutverki að heiðra og kynna Hammondorgelið. Er það gert með því að fá tónlistarmenn, allt frá heimamönnum til landsþekktra, til að leika listir sínar og er Hammondorgelið rauði þráðurinn í gegnum alla dagskrána.
Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og hefur jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg síðan. Hún er nú orðin ein af elstu tónlistarhátíðum landsins.
Hammondhátíð er ávallt sett á sumardaginn fyrsta sem ber alltaf upp á fimmtudegi, en það hefur jafnan verið nefnt heimakvöld á Hammondhátíð. Það hefur þó þróast á síðustu árum í austfirskt kvöld, þar sem leitast er eftir því að finna tónlistarmenn og hljómsveitir á Austurlandi til að spila í bland við heimamenn. Tónleikar eru svo á föstudags- og laugardagskvöldinu en þar er reynt að fá stærri og þekktari nöfn til að leika. Hátíðinni er svo slitið með tónleikum í Djúpavogskirkju, en jafnan er þar einsöngvari ásamt hammondleikara.
Í gegnum árin hafa í kringum Hammondhelgina sprottið upp fjölmargir aðrir viðburðir. Handverksfólk og hönnuðir hafa verið mjög áberandi með sínar afurðir.
Listinn yfir þá tónlistarmenn og hljómsveitir sem komið hafa fram á hátíðinni í gegnum tíðina er orðinn langur og glæsilegur og hafa hljómsveitir og listamenn á borð við Hjálma, Baggalút, Dúndurfréttir, Megas, Todmobile, Stuðmenn, Sólstafi, Mammút, Mugison og Nýdönsk heiðrað okkur með nærveru sinni. Allt í allt hafa um 250 tónlistarmenn stigið á stokk á Hammondhátíð. Þá hafa ófáir austfirskir tónlistarmenn komið fram auk þess sem þáttur heimamanna hefur verið rómaður en um 60 tónlistarmenn og konur frá Djúpavogi hafa tekið þátt frá upphafi.
Hammondhátíð er orðinn langstærsti menningarviðburður Djúpavogs. Það þarf því ekki að hafa mörg orð um hve mikils virði þessi hátíð er t.a.m. fyrir ferðaþjónustuaðila, verslun, handverksfólk og alla þá sem bjóða einhverskonar þjónustu, enda fer viðburðum í tengslum við þessa hátíð fjölgandi ár frá ári. Ekki síst er hún mikilvæg fyrir okkur íbúana; í þessu samheldna samfélagi bjóðum við landsmönnum öllum upp á tónlistarhátíð á heimsmælikvarða, hátíð sem er sú eina sinnar tegundar í Evrópu.
Stjórn Hammondhátíðar skipa:
Ólafur Björnsson
Elísabet Guðmundsdóttir
Kristján Ingimarsson
Guðjón Viðarsson
Þórir Stefánsson