Halló Haust ! – Eldhnúkar

8. September, 2024

Gengið verður á hina litríku Eldhnúka við Hjálpleysu frá kofa á Fagradal. Farið verður upp Launárdal og gengið á alla þrjá tindana.
Mesta hæð: 1.117 m
Hækkun: 800 m
Vegalengd alls: 12 km
Göngutími: 7-8 klst.
– Hlýr, vind og vatnsheldur fatnaður
– Kraftmikið nesti og drykkir
– Góðir gönguskór
Brottför kl 8:00 frá N1 Egilsstöðum og 8:30 frá upphafsstað gönguleiðarinnar við gamla sæluhúsið á Fagradal.
Verð: 5.000,-
Allir velkomnir