Hacking Austurland

30. September, 2021 - 2. October, 2021

Hacking Austurland er lausnamót sem fer fram dagana 30. september – 2. október á Austurlandi.

Þátttakendur vinna að því að þróa lausnir við eftirfarandi áskorunum tengdum bláu auðlindinni:

  • Hvernig getum við aukið verðmætasköpun í sjávarútvegi með því að nýta tækni og nýjar aðferðir á skapandi hátt?
  • Hvernig getum við leitt saman sjávarútveg og landbúnað með því markmiði að stuðla að betri nýtingu afurða í báðum greinum?
  • Hvernig getum við skapað einstaka matarupplifun með því að tengja saman sjávarútveg og ferðaþjónustu?
  • Hvernig getum við stuðlað að því að hægt sé að kaupa beint frá báti?

Markmið lausnamótsins er að efla frumkvöðlastarf og sköpunarkraft á svæðinu og þannig stuðla að nýjum verkefnum og viðskiptatækifærum. Lausnamótinu er ekki síður ætlað að vekja athygli á því öfluga frumkvöðlasamfélagi sem er á Austurlandi.

Útkoman úr lausnamótinu getur verið stafræn lausn, vara, þjónusta, verkefni, hugbúnaður, vélbúnaður, markaðsherferð, eða annað í þeim dúr.

Skráning opnar 16. ágúst á www.hackinghekla.is

Gerum gott samfélag enn betra með skapandi hugsun og nýsköpun – Við þurfum á þér og þínum hugmyndum að halda