Guðrún Árný – Notaleg jólastund

8. December, 2024

Guðrún Árný – Notaleg jólastund um allt land ✨🎄🎶
Söngkonan og píanóleikarinn Guðrún Árný verður á flakki í desember með hugljúfa og einlæga jólatónleika ásamt strengjum og kórum úr heimabyggð.
Tónleikar fyrir alla sem vilja brjóta upp hversdagsleikann, hlæja, njóta og hlusta á fallega tónlist. Allt á laufléttum nótum þar sem Guðrún hefur hvað mest gaman af því að spjalla og kynnast áhorfendum milli laga.