Gönguvika 2021

19. June, 2021 - 26. June, 2021

Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð er með stærstu útivistarviðburðum ársins. Í boði eru á fimmta tug viðburða þá viku, bæði gönguferðir og skemmtanir, en vikan er ekki síður skilgreind sem gleðivika.

Áhersla er lögð á fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi, s.s. fjölskyldugöngur, sögugöngur og göngur fyrir alvöru fjallagarpa og á kvöldin er brugðið á leik með kvöldvökum og sjóræningjapartíum.

Göngu- og gleðivikan fer fram síðustu vikuna í júní eða frá 19.júní-26. júní 2021. Vikan stendur frá laugardegi til laugardags og fyllir því átta heila daga af fjölbreyttum viðburðum og frábærri útivist. Skipuleggjendur eru Ferðafélag Fjarðamanna í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri.

Gönguleiðarkorti og dagskrá er dreift um allt Austurland.