Góðan daginn faggi í Egilsbúð á Neskaupstað

Egilsbúð

22. September, 2022

Góðan daginn faggi sló sannarlega í gegn í Þjóðleikhúsinu á liðnu leikári, með yfir 40 uppseldum sýningum, einróma lofi gagnrýnenda og Grímutilnefningum. Sýningin fer í leikferð um landið í haust þar sem verður bæði boðið upp á sýningar fyrir almenning og boðssýningar fyrir elstu bekki grunnskóla.

Sýnt verður í Egilsbúð á Neskaupstað 22. september kl. 20 og verður boðið upp á stuttar umræður fyrir áhugasama að sýningu lokinni.

Góðan daginn faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasamann leiðangur um innra líf sitt og fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað.

Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra. Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur enga ósnortna.

Miðasala:
https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10450/

Nánar um sýninguna:
https://leikhusid.is/syningar/godan-daginn-faggi/