Glæpakviss – Glæpafár á Íslandi í 25 ár
5. September, 2024
Fimmtudaginn 5. september bjóða bókasöfn landsins upp á lauflétta og skemmtilega en þó skuggalega spennandi spurningakeppni um íslenskar glæpasögur og tekur Bókasafn Héraðsbúa að sjálfsögðu þátt.
Um er að ræða hefðbundið bar-svar eða „pub-kviss“ þar sem tveir til fjórir eru saman í liði.
Spyrill og alráður stjórnandi verður hinn glæpsamlega skemmtilegi héraðsskjalavörður, Stefán Bogi Sveinsson.
Spurningarnar koma úr smiðju Hins íslenska glæpafélags undir stjórn foringjans Ævars Arnar Jósepssonar en félagið fagnar 25 ára afmæli með ýmsum viðburðum í ár undir yfirskriftinni „Glæpafár á Íslandi í 25 ár“.
Keppnin fer fram á hinu hryllilega kósý Tehúsi, fimmtudaginn 5. september og hefst stundvíslega klukkan 17:30.