Franskir Dagar: Classic rock með Matta og Stebba Jak
25. July, 2024
Við kynnum með stolti stórtónleika Franskra daga 2024; Classic Rock með Matta og Stebba Jak.
Þessir mögnuðu söngvarar mæta í Skrúð fimmtudaginn 25. júlí og verða með frábæra hljómsveit með sér. Á lagalistanum eru, ja einhver myndi einfaldlega segja bestu lög í sögu rokksins!
Húsið opnar 20.30 og tónleikar hefjast stundvíslega 21.30. Miðaverð er aðeins 6.900 kr í forsölu og 7.900 kr við hurð. Forsölu lýkur kl. 18 á tónleikadegi eða einfaldlega ef selst upp.
Tryggið ykkur miða sem allra fyrst.
Verið velkomin á Franska daga á Fáskrúðsfirði 24. – 27. júlí