Flug&Fákar 2024

28. July, 2024

Ótrúlegt að hugsa til þess að nú í sumar verði tvö ár síðan að flughátíðin Flug&Fákar var síðast haldin á Egilsstaðaflugvelli. Hátíðin 2022 fór fram úr öllum okkar væntingum. Veðurguðirnir voru með okkur í liði, fjöldi flugvéla kom, um 1400 gestir mættu á flugvöllinn og vélar annaðhvort voru til sýnis eða sýndu listir sínar. Bandaríski herinn sendi P-8 kafbátaleitarvél til okkar sem auðvitað sló í gegn, ásamt því að vél Icelandair lenti og gat fólk skoðað hana með gestsauga í stað augum ferðalangsins eins og vanalega. Börn og fullorðnir nutu þess að skoða fornbíla, 4×4 jeppa, slökkvibíla, snjómoksturstæki, gamla traktora og fólk fylgdist með spyrnu milli bíls og flugvélar.
Í stuttu máli; ótrúlegur dagur sem við erum óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta með ykkur.
Örvæntið ekki, því við ætlum að standa við gefin loforð og halda Flug&Fáka annað hvert ár og því eigið þið von á góðu á Bræðslu-sunnudaginn 28.júlí 2024. Þá munu vélar af öllu tagi vera til sýnis og jafnvel verða einhverjar nýjungar í ár þar sem við erum þegar farin að kíkja innum glugga á hverjum bílskúr í bænum og sjá hverju fólk lumar á sem gaman væri að skoða betur.
Það eru fáir staðir á landinu með jafnríka græjumenningu og við hér á Austurlandi, sást það greinilega á því hve ótrúlega margir sóttu hátíðina 2022 heim, sem gerði hana að stæstu bæjarhátíð ársins, þó frumraun væri.
Við vonumst til að sjá sem allra flesta.
VRÚMM, VRÚMM!