Fjallagangan 2023

Fjarðarheiði

29. April, 2023

Búið er að opna fyrir skráningar í Fjallagönguna 2023!

Fjallagangan 2023 verður haldin í Múlaþingi 29. apríl 2023.

Gangan mun fara fram í fjallgarðinum við Fjarðarheiði en um margar skemmtilegar gönguleiðir er að velja á svæðinu og verður seglum hagað eftir snjóalögum.

Fjarðarheiði er í um 600m hæð þar sem ávallt er nægur snjór í lok apríl.

Við höfum mikinn metnað til þess að búa til einstaka og umfram allt skemmtilega skíðagöngu sem hentar trimmurum jafnt sem hörðustu gönguköppum. Aðal markmiðið er að hafa gaman og sigra sjálfan sig. Gangan er síðasta gangan í Íslandsgöngunni, mótaröð Skíðasambandsins.

Boðið verður upp á heita súpu og hreindýrapate í markinu

30 km fyrir 17 ára og eldri

Skráningargjald er 8.000kr til og með 20. apríl, eftir það hækkar skráningargjald í 10.000kr. Skráningu líkur 27. apríl kl 21:00.

Allir sem taka þátt í 30 km fá þátttökuverðlaun, en að auki er verðlaunað í verðlaunaflokkum samkvæmt reglum Íslandsgöngunnar.

Drykkjarstöðvar verða á leiðinni.

15 km

Skráningargjald 5.000kr til og með 20. apríl, eftir það hækkar skráningargjald í 7.000kr. Skráningu líkur 27. apríl kl 21:00

Allir sem taka þátt í 15 km fá þátttökuverðlaun, en að auki eru veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjá af hvoru kyni.

5 km

Skráningargjald 3.000kr. Skráningu líkur 27. apríl kl. 21:00

Allir sem taka þátt í 5 km fá þátttökuverðlaun.

Dagskrá: Laugardagurinn 29. apríl

Kl 9:00 Afhending keppnisgagna og brautarlýsing á mótsstað

Kl 10:00 Ræsing 30 km

Kl 10:15 Ræsing 5 og 15 km

Veitingar og verðlaunaafhending í mótslok

(tímasetningar geta breyst eftir því sem nær dregur)

Hlökkum til að sjá ykkur á Austurlandi!

skráning fer fram inn á: https://netskraning.is/fjallagangan/