Fimmtudagsgöngur í Fljótsdal

18. June, 2020 - 27. August, 2020

Boðið verður upp á fræðslugöngur í Fljótsdalnum alla fimmtudaga í sumar. Lagt verður af stað með heimamönnum kl 20:00 og gengið í um 1 til 1,5 tíma. Göngurnar eru miserfiðar og því ágætt að kynna sér það ögn áður.

Öllum er velkomið að slást í för með heimamönnum.
Sjáumst!

18. júní: Ranaskógur og nágrenni.
Komið saman við Gilsá og skilti við Ranaskóg.
Fararstjóri: Reynir kjerúlf

25. júní: Brekka og nágrenni.
Frásagnir af læknasetrinu sem þar var og umhverfinu í kring.
Fararstjórar: Stefán Þórarinsson og Hallgrímur Þórhallsson frá Brekku.

2. júlí: Gengið frá Múlanum inn Suðurdal að Arnaldsstöðum.
Fararstjórar: Baldur Hjaltason, Jónas Þorsteinsson og Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir.

9. júlí: Skógræktin í Brekkugerði.
Fararstjóri: Jóhann F. Þórhallsson, Sigrún Erla Ólafsdóttir og Þórhallur Jóhannsson

16. júlí: Gengið að Drangadölum í landi Víðivallagerðis.
Leiðin er nokkuð brött í um 1 km og hækkun um 250 m.
Fararstjóri: Þorsteinn Pétursson.

23. júlí: Gengið upp að Völusteini í landi Mela.
Keyrt heim að Melum og gengið þaðan upphlíðina eftir skógarstíg að Völusteini. Fararstjórar: Helga Eyjólfsdóttir og heimilisfólkið á Melum Eyjólfur Ingvason og Þórdís Sveinsdóttir.

30. júlí: Tröllkonustígur upp frá Fljótsdalsgrund
Fararstjóri: Ingólfur Friðriksson

6. ágúst: Mjóanes fræðst um staðinn og nærumhverfið.
Gengið m.a. upp á Klepp.
Fararstjóri Elsa Reynisdóttir

13. ágúst: Valþjófsstaður og nágrenni.
Fararstjórar sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og Friðrik Ingi Ingólfsson

20. ágúst: Hestmelur í landi Hafursár.
Gengið verður frá Hafursá, upp í gegnum skógræktina eftir skógarstíg og upp á Hestmel. Þar er víðáttumikið og fallegt útsýni.
Fararstjórar Þorkell Sigurbjörnsson og Anna Valgerður Hjaltadóttir.

27. ágúst: Gengið með Hrafngerðisá við Droplaugarstaði.
Fararstjóri Lárus Heiðarssonar.