Fimm mínútur í jól – Hátíðartónleikar í Eskifjarðarkirkju

Tónlistarmiðstöð Austurlands

14. December, 2023

Valdimar Guðmundsson syngur hugljúf jólalög í nýjum útsetningum með hljómsveit sinni, LÓN. Sérstakur gestur: RAKEL.

Hljómsveitin LÓN með söngvarann Valdimar í broddi fylkingar flytur óvæntar útgáfur af þekktum jólaperlum. Sérstakur gestur er söngkonan RAKEL.
Jólaplatan „5 mínutur í jól“ kom út í desember í fyrra og vann sig heldur betur í hjörtu hlustenda. Nú gefst fólki tækifæri til að heyra plötuna flutta á svið í notalegu umhverfi víðsvegar um landið.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Tónlistarmiðstöð Austurlands og Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Húsið opnar klukkan 20:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:30
Miðaverð er 5900 og fást miðar hér: https://app.glaze.is/t/gGrD9z9MgEZfYSz13OQ4