Dymbilvika í Safnahúsinu á Egilsstöðum

25. March, 2024 - 27. March, 2024

Bókasafn Héraðsbúa og Minjasafn Austurlands bjóða upp á skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna í dymbilvikunni (25.mars – 27. mars).
Á bókasafninu verður hægt að setjast niður og föndra í rólegheitum frá klukkan 13 til 17:30. Allt efni til föndurs á staðnum. Ath að yngri börn verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Á Minjasafninu er boðið upp á tvennskonar þrautir sem leysa þarf inn á sýningum safnsins. Opið frá 11-16. Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest