Daníel Hjálmtýsson í Norðfjarðarkirkju

Norðfjarðarkirkja

30. July, 2023

Menningarstofa í samstarfi við Daníel Hjálmtýsson kynnir:
Daníel Hjálmtýsson heimsækir Neskaupstað sunnudaginn 30. júlí nk. og leikur frumsamin lög í bland við ábreiður í órafmögnuðum stíl í Norðfjarðarkirkju.
Daníel sendi ásamt hljómsveit sinni frá sér plötuna Labyrinthia við lok árs 2022 og kom platan út à vínyl á vegum Reykjavik Record Shop þann 23.mars sl. Platan, sem hlotið hefur mikið lof bæði hér heima og erlendis, er við það að seljast upp en einhver eintök verða til sölu í kirkjunni ásamt öðrum varning en Daníel verður tiltölulega nýkominn heim frá tónleikaferðalagi um Austur-Evrópu. Daníel samdi megnið af plötunni er hann bjó á Austfjörðum frá árinu 2020 – 2022 en framhlið plötunnar ber einmitt listaverk sem unnið er í samstarfi við listamanninn Villa Jóns en það sýnir hið mikla Oddskarð í ævintýraheim Daníels.
Lög Daníels hafa þá ratað inn á vinsældarlista á Íslandi, Bandaríkjunum, Ítalíu og fleiri stöðum en Daníel hefur einnig getið sér gott orð fyrir túlkun sína á lögum Leonard Cohen og Nick Cave og selt upp tónleika um allt land því tengdu.
Gera má ráð fyrir huggulegri stemmingu og heiðrun minningar vinar Daníels og læriföður, Mark Lanegan en platan Labyrinthia er einmitt tileinkuð minningu Lanegan, sem lést þann 22.febrúar 2022.
Miðasala verður við innganginn og er miðaverði stillt í hóf, en aðgangseyrir er 2000 kr.