Dagsferð: Vöðlavík

Tanni Travel

22. August, 2022

Ferðin

Við leggjum af stað frá Hótel Eskifirði kl. 10:00. Höldum út sveitina og heimsækjum einn merkasta stað Íslands, í alþjóðlegu samhengi, og einn merkasta fundarstað steinda á jörðinni, Helgustaðanámu.
​Þar fannst silfurberg sem breytti heiminum í margskonar vísinda- og tækniþróun á tímabilinu 1780-1872.

Ekið er yfir Víkurheiði sem liggur í um 400 m.y.s. og til Vöðlavíkur.
Föst búseta var í víkinni til 1968 en á seinni árum hefur hún orðið afdrep fyrir þá sem eru að leitast eftir kyrrð og ró. Víkin er fáfarin og rómuð fyrir náttúrufegurð.

Vegur var lagður til Vöðlavíkur 1940 og þjónar hann ennþá hlutverki sínu sem helsta samgönguleið til hennar. Þegar keyrt er niður í Vöðlavík rennur lítil á við hlið vegarins og myndar fallega fossa. Við keyrum út á svartan sandinn og njótum orkunnar frá hafinu.

Þegar við höfum fengið okkur kaffisopa þá höldum við til baka til Eskifjarðar. ​

Staðir: Vöðlavík
Tími:  5klst
Erfiðleikastig: Létt

Verð:
11.700.- kr per mann
5.850.- kr fyrir börn (6-15ára)
Frítt fyrir ungabörn (0-5ára)​

Brottfarastaður:
Hótel Eskifjörður kl 10:00 – Sjá kort

Taka með:

  •   Góðir gönguskór
  •   Lítinn bakpoka
  •   Föt eftir veðri
  •   Nesti
  •   Vatnsflösku

Innifalið: 

  • Leiðsögumaður á íslensku/ensku

Annað:

  • Börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum

Gott að vita:
Frábært að bæta göngu í Hólmanesið við seinnipart dags og enda svo í sundlauginni á Eskifirði og í kvöldmat á Randulfssjóhúsi.

Frekari upplýsingar og bókanir eru á heimsíðu Tanna Travel: Vöðlavík – TANNI TRAVEL