Dagar myrkurs

27. October, 2021 - 31. October, 2021

Um hátíðina

 Hátíðin Dagar myrkurs verður haldin á Austurlandi 27. október – 31. október 2021 og er þetta í 22. skipti sem hátíðin er haldin.  Dagar myrkurs er sameiginleg byggðahátíð allra íbúa á Austurlandi sem hefur það að markmiði að leggja áherslu á viðburði sem hvetja til samveru íbúa og að við bjóðum hvert öðru uppá skemmtilega afþreyingu í skammdeginu.  Gesti eru að sjálfsögðu velkomnir til að njóta með okkur.  Hvatt er til þess að íbúar, félagasamtök og fyrirtæki búi til viðburði sem lýsa upp myrkrið, viðburði sem fela í sér rómatík, drauga, fornar hefðir í bland við nýjar. Hátíðin er í grunninn menningarhátíð og hafa fjölbreyttir menningarviðburðir verið í boði á þessum tíma ársins, allt frá árinu 2000.

Árið 2019 var myndaður nýr stýrihópur og má segja að þangað megi rekja upphafið af því að tengja Daga myrkurs við Hrekkjavöku, en leiða má rök að því að Hrekkjavakan sé í grunninn ekki bandarísk hátíð, heldur keltnesk og mögulega íslensk. Sagan segir að 31. október ár hvert, hafi Keltar haldið Hátíð hinna dauðu en þar voru færðar þakkir fyrir uppskeru sumarsins og á þessum tíma tóku kuldinn og myrkrið við og dauðinn var allt umlykjandi – þetta voru einskonar áramót og þá var tími þar sem alls konar furðuverur fóru á kreik og menn gátu skynjað heimana að handan, séð drauga og álfa og spáð í framtíðina.  Sambærileg hátíð var síðan haldin á Íslandi fyrir kristnitöku sem var kölluð Veturnætur.  Á þessum tíma myndaðist einnig hefð fyrir því að kertum væri komið fyrir í útskornum rófum og næpum og ungir og aldnir fóru á milli húsa, klæddir búningum og með grímur.  Þessi hátíð fluttist síðan til vesturheims með Keltum og þekkjum við hana í dag sem Hrekkjavöku og þar komust þeir í kynni við graskerin sem eru mun stærri og auðveldari til útskurðar en rófur eða næpur.   Þjóðfræðingurinn Terry Gunnell hefur einmitt bent á að Hrekkajvökuhátíðin eigi sér þannig í raun keltnestkan/íslenskan uppruna.   Því má mjög gjarnan tengja Daga myrkurs við Hrekkjavöku.

Ljósmyndasamkeppni

Ár hvert er haldin ljósmyndasamkeppni sem nú hefur fest sig í sessi.  Öllum er velkomið að taka þátt, eina skilyrðið er að þemað „Myrkrið“ njóti sín á myndunum sem sendar eru inn.  Veitt eru verðlaun uppá 50.000.- fyrir fyrsta sætið og Austurbrú áskilur sér rétt til að nota innsendar myndir til að kynna hátíðina.  Myndir skal senda inná netfangið [email protected] og er síðasti skiladagur 2. nóvember nk.

Samkeppni um best skreytta gluggann

Í ár ætlum við að bjóða íbúum að senda inn mynd af glugga sem þeir skreyta heima hjá sér og/eða í vinnunni.  Best skreytti glugginn verður valinn og í verðlaun eru gjafabréf af svæðinu. Myndir skal senda inná netfangið [email protected] og er síðasti skiladagur 2. nóvember nk.

Frekari upplýsingar veitir Halldóra Dröfn, verkefnastjóri á [email protected]