Coney Island Babies í Beituskúrnum

4. June, 2021

Coney Island Babies í Beituskúrnum, Neskaupstað
4. júní kl. 21:00-22:00
Frítt inn en takmarkað sætaframboð

Coney Island Babies var stofnuð árið 2004 í Neskaupstað og hefur starfað með stuttum hléum alla tíð síðan.

Hljómsveitin hefur gefið út tvær plötur: Morning to Kill (2012) og Curbstone (2020) en sú síðarnefnda vakti þó nokkra athygli og innihélt m.a. lagið Swirl sem varð vinsælt í fyrrasumar og endaði í 32. sæti yfir mest spiluðu lög síðasta árs á Rás 2. Báðar plöturnar má finna á Spotify.

Talið verður í fyrsta lag stundvíslega klukkan 21:00. Hljómsveitin vill minna fólk á þær reglur sem eru gildi vegna Covid-19 þar sem kveðið er á um grímuskyldu og fleira – frekari upplýsingar á covid.is

Athugið að staðsetning tónleikanna getur breyst vegna sóttvarnarlaga.