Bubbi í HAVARÍ

26. August, 2017

Nú síðumars og í haust mun Bubbi Morthens leggja land undir fót með kassagítarinn og koma fram víðsvegar um landið. Þetta hefur Bubbi gert í hart nær 40 ár og lætur sitt ekki liggja eftir þetta árið. Frá ágúst og fram í nóvember mun hann koma fram á tæplega 20 tónleikum.

Bubbi verður með tónleika í Havarí Berufirði laugardagskvöldið 26. ágúst. Hann mun flytja lög af nýju plötunni í bland við eldra efni.

Tónleikaferðin kallast Túngumál sem er einmitt titillinn á nýjustu plötu Bubba sem kom út á afmælisdaginn hans 06.06.17. Platan hefur fengið fádæma góðar undirtektir og vilja gagnrýnendur meina að þetta sé ein af hans allra bestu plötum.

Við hlökkum til þess að eiga mergjaða kvöldstund með þessum magnaða listamanni.

Sjáumst í Havarí!